Barátta fyrir bættum árangri í loftslagsmálum - Umhverfismánuður atvinnulífsins 2023

Samtöl atvinnulífsins kynna umræðuþáttinn Barátta fyrir bættum árangri í loftslagsmálum . Í þættinum ræðir Lárus Ólafsson , viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði hjá Samtökum iðnaðarins, við Guðjón Jónsson , fyrrverandi stjórnarformann VSÓ og sérfræðing í umhverfismálum.Nóvember er umhverfismánuður hjá Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum og í ár er sjónum beint að loftslagsmálum undir yfirskriftinni Á rauðu ljósi?Hvern þriðjudag og fimmtudag í október njótum við 20 mínútna áhorfs á Samtöl atvinnulífsins þar sem hver atvinnugrein ræðir áskoranir og tækifæri í loftslagsmálum. Hápunktur mánaðarins er svo Umhverfisdagur atvinnulífsins 29. nóvember þar sem þema mánaðarins er í hávegum haft og tileinkað Loftslagsvegvísum atvinnulífsins sem gefnir voru út í vor.sa.is

Om Podcasten

Í samtölum atvinnulífsins förum við vítt og breitt um ólíka kima atvinnureksturs á Íslandi. Nýjustu þættirnir eru teknir upp í október og nóvember 2023 í tilefni af Hringferð SA - Samtaka um land allt. Þar  tekur Guðný Halldórsdóttir púlsinn á atvinnurekendum á hverju svæði. Þá má finna fróðlega þætti í tengslum við sjálfbærnimál í tilefni af umhverfismánuði atvinnulífsins. Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslensks atvinnulífs með sex aðildarsamtökum sem byggja á ólíkum atvinnugreinum; iðnaði, sjávarútvegi, verslun og þjónustu, ferðaþjónustu, orku- og veitu og fjármála. Yfir 2.000 fyrirtæki í fjölbreyttum greinum eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins, allt frá sjálfstætt starfandi frumkvöðlum til stærstu fyrirtækja landsins. Hjá aðildarfyrirtækjum SA starfa um 70% launafólks á almennum vinnumarkaði.