Friðrik Pálsson á Hótel Rangá - Samtaka um land allt

Samtök atvinnulífsins leggja land undir fót í október og nóvember í Hringferð SA sem ber yfirskriftina Samtaka um land allt. Þar eru vinnu- og fræðslufundir haldnir með aðildarfyrirtækjum, bæjarbúum og stjórnsýslu. Í kjölfarið tekur Guðný Halldórsdóttir hús á vel völdum atvinnurekanda. Í þessum þætti heyrum við í Friðriki Pálssyni, eiganda Hótel Rangár, sem hefur marga fjöruna sopið. Guðný og Friðrik fara um víðan völl í spjallinu; allt frá því þegar hann vann óvænt fyrir BBC með David Attenborough til skoðana hans á verðbólgu og hvað þarf til að kveða niður drauginn. sa.is

Om Podcasten

Í samtölum atvinnulífsins förum við vítt og breitt um ólíka kima atvinnureksturs á Íslandi. Nýjustu þættirnir eru teknir upp í október og nóvember 2023 í tilefni af Hringferð SA - Samtaka um land allt. Þar  tekur Guðný Halldórsdóttir púlsinn á atvinnurekendum á hverju svæði. Þá má finna fróðlega þætti í tengslum við sjálfbærnimál í tilefni af umhverfismánuði atvinnulífsins. Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslensks atvinnulífs með sex aðildarsamtökum sem byggja á ólíkum atvinnugreinum; iðnaði, sjávarútvegi, verslun og þjónustu, ferðaþjónustu, orku- og veitu og fjármála. Yfir 2.000 fyrirtæki í fjölbreyttum greinum eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins, allt frá sjálfstætt starfandi frumkvöðlum til stærstu fyrirtækja landsins. Hjá aðildarfyrirtækjum SA starfa um 70% launafólks á almennum vinnumarkaði.